Bríet, blómin og Hannes

Bríet, blómin og Hannes

O události

Dagskráin „Bríet, blómin og Hannes“ var flutt í Hannesarholti - Hljóðbergi 27. september 2025, til heiðurs Bríeti Bjarnhéðinsdóttur, kvenréttindakonu, blaðamanni og ritstjóra Kvennablaðsins á afmælisdegi hennar, og verður nú endurtekið í september 2026. Fjallað verður um samstarf Hannesar Hafstein, fyrsta ráðherra Íslands og Bríetar, ólíka æsku þeirra og kjör og hvernig lífsþræðir þeirra spunnust saman, meðan bæði lifðu. Samstarf þeirra hafði mikil áhrif á þróun kvenréttinda hér á landi. Sá sögulegi sannleikur má ekki gleymast.En hvaða blóm eru þetta ? - Það færðu að vita ef þú mætir í Hannesarholt þann 27. september. Sýningin er samvinnuverkefni Leikhúslistakvenna 50 + og Hannesarholts.Dagskráin er um eina klst.ÞáttakendurÁsdís Skúladóttir leikstjóri, skrifaði handritið ásamt hópnumEdda Þórarinsdóttir leikkonaHelga E. Jónsdóttir leikkonaÞórey Sigþórsdóttir leikkonaLaufey Sigurðardóttir fiðluleikari

Nalezeno Somem·Zobrazit originál
Místo

Grundarstígur 10, 101 Reykjavíkurborg, Ísland

Trasa

Tento týden v Sverige